Tuesday, September 28, 2004
Aftur 12 marka tap. Nú í eyjum!!
Já já þetta var svona eins og fyrri leikir hafa verið, vorum inní leiknum í fyrri hálfleik en svo sigu þeir jafnt og þétt yfir og kláruðu dæmið. Það er svo leiðinlegt að skrifa um svona tapleiki þar sem leikur Stjörnunnar er slakur. En þetta er á uppleið, það er alveg á hreinu. Það var svosem ekkert markvert sem gerðist nema það komu 3 rauð, samt bara eitt beint. Það kom þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum þegar Villi var togaður niður af Svavari Vignissyni og fékk hnéð í höfuðið og hálfrotaðist vinurinn. En þetta endaði semsagt 30-18 fyrir eyjamenn og við Stjörnumenn þurfum að girða brók okkar upp fyrir haus og spíta í lófana fyrir næsta leik.
En ferðin sjálf var hálgert ævintýri útaf fyrir sig og mátti litlu muna að allt liðið kæmist ekki út í eyjar en það hafðist þó fyrir rest. En ekki komumst við þó til baka vegna þess að stormurinn Guðni gekk yfir suðurlandið, þannig að við þurftum að gista yfir nótt og vona það besta. Kvöldið var rólegt og sumir leigðu sér video og gláptu fram eftir. En þó heyrast raddir að Benni hafi verið að kenna honum Hemma litla lífsreglurnar og áttu þeir víst rómó evening yfir spólu liggjandi í sama rúmi. En það er nú bara gott að menn kynnist örlítið. En jæja um morguninn var ekki siglt þar sem Guðni var enn á svæðinu. En hann lægði um hádegi og stuttu eftir var sigt með Eistnenskum dalli yfir til Þorlákshafnar. Það er nú ekki frásögum færandi hvernig Blikamenn hegðuðu sér á leiðinni en þeir voru spúandi um allar trissur og sumir ældu blóði. En það var jú nú vitlaust í sjóinn eftir allt.
Næsti leikur er á Miðvikudag við Víking í bikar. Ásgarður kl. 19:15
Ho ho: Kúrt
Posted at 04:54 pm by Stjornumenn
Permalink
Tuesday, September 21, 2004
Úr herbúðum stjörnunar berast þau tíðindi að Gummi markmaður sé búinn að fá sér nýtt pungbindi þar sem hitt sé útbrunnið. Gummi hefur víst reynt allt til að fá orkuna aftur í pungbindið þar á meðal að sofa með það hjá sér, fara með það í bíó og á kaffihús til að ná betri tengslum við það en allt kemur fyrir ekki, ekkert virkar.
Nú hefur Gummi gripið til þess örþrifaráðs að búa sér til sitt eigið, hann notar víst gömlu skelina og hefur borið á hana aloa vera krem og sauð hana svo í potti, vafði hana inn í laufblöð og saumaði svo flík utan um hana. Sem streng hefur hann ákveðið að nota úr gömlum g-streng frá Jelenu og vonast hann til þess að fá kraft frá henni. Nú er bara að sjá hvernig þetta gengur og hvort að þetta smiti út frá sér.
Með kveðju
Ali Baba
Posted at 05:01 pm by Stjornumenn
Permalink
Jæja þá er þessi blessaða deild farin að rúlla og tveir leikir búnir og liðið er ekki með nema 26 mörk í mínus. Ekki slæmur árangur það því í fyrra var einn leikur sem tapaðist með 26 mörkum, þannig að það má segja að Stjörnuliðið mæti helmingi betra til leiks í ár en í fyrra.
Jæja þá að leikjunum. Fyrsti leikur var á móti Gróttu-KR og í því liði mættu til leiks 3 Júdasar, þeir Jóhannes Ólafur, Björn Frið og David Kekelia en þessir leikmenn skoruðu samtals 2 mörk fyrir KR-inga. Leikurinn var jafn fyrstu 20 mínúturnar og allt gat gerst. En KR-ingar voru skynsamari í sóknarleiknum og nýttu sín dauðafæri það sem eftir lifði leiks á meðan við Stjörnumenn nýttum ekki okkar dauðafæri og létum við Hlyn í markinu verja hvað eftir annað frá okkur. Þarna lá munurinn á liðunum í þessum leik þ.e.a.s í dauðafærunum, því við náðum að skapa okkur nóg af þeim, og kannski spilar það einnig inní að leikmenn þekkja ekki hvorn annann nógu vel innann vallar. Ég held að það þurfi ekkert að fara nánar í þennann leik en hann tapaðist með 12 mörkum.
Þar næst komu Valsarar í heimsókn á föstudaginn var og í því liði mátti glitta í eitt stykki Júdas en það var góði strákurinn rauði Vilhjálmur Halldórsson en hann skoraði eitt mark í leiknum og fékk rautt spjald. En þess má nú geta að mestu erkif... Íslands í dag Anton og Hlynur voru að dæma þann leik. Svo virðist sem þeir hafi eitthvað verulega mikið ógeð á Vilhjálmi og einnig Stjörnunni. Þess má geta að Stjarnan hefur aldrei unnið leik þegar þeir kumpánar hafa dæmt og það gildir um alla flokka. En það virtist ekki skipta neinu máli fyrir Vilhjálm að hann skyldi fara í Val, því hann fékk samt að kenna á þeim, þeir bara urðu að reka hann útaf hvað sem það kostaði og það tókst, 3 brottvísanir og tvær þeirra vitleisa og þar með losuðu þeir sig við Vilhjálm. Þetta var svona bara til að halda í hefðina og gefa honum rautt spjald. En að leiknum þá var hann í járnum í fyrri hálfleik og vörnin stóð sig vel, en allt of mikið af feilum sem urðu okkur að falli. Í seinni hálfleik var eins og við Stjörnumenn værum búnir með kvótann og 3-2-1 vörn Valsara var okkur ofviða og Valsmenn gengu á lagið og slátruðu okkur. Þetta var leikur mistaka og feila hjá okkur það er eitthvað sem þarf að laga fljótt. Gummi stóð sig vel í markinu og varði í kringum 20 skot og besti maður liðsins. En þessi leikur tapaðist semsagt og það með 14 mörkum.
Næsti leikur er í Eyjum á föstudaginn kemur.
Smá fréttir innan liðsins en nú hafa þrír af fjórum leikmönnum sem gistu sjúkrahús landans þennan mánuðinn náð heilsu og bíðum við nú bara eftir að Dabbi ná fullri heilsu. Svo svo ein stórfrétt en hún er sú að nú hefur íþróttahúsið ákveðið að sponsora Villa um tvenn handklæði per. æfingu þar sem að eitt stykki virtist ekki duga.
Venlig hilsen. Kurt Nilsen
Posted at 05:15 am by Stjornumenn
Permalink
Monday, August 23, 2004
Posted at 06:59 pm by Stjornumenn
Permalink
Sunday, August 22, 2004
Ich heise Kurt Nielsen
Posted at 05:17 pm by Stjornumenn
Permalink